Masterklass námskeiđ
Eftirfarandi masterklassnámskeið verða í boði á tónlistarhátíðinni Við Djúpið dagana 12. - 27. júní 2010. Athugið að skráning fer fram á heimasíðu Við Djúpið.
Masterklassnámskeið í fiðluleik.
Kennari: Sif Tulinius.
Einingar:
Umsjónardeild: Tónlistardeild
Skipulag: Kennt á Ísafirði, 22. - 27. júní 2010
Staðsetning: Tónlistarskóli Ísafjarðar
Æfingaraðstaða; Aðstaða til æfinga er bæði í menningarmiðstöðinni Edinborg og Tónlistarskóla Ísafjarðar.
Námsmat: Ástundun
Markmið: Markmið námskeiðsins er að gefa nemendum kost á að njóta tilsögn og handleiðslu eins færasta listamanns á sínu sviði í nýju og hvetjandi umhverfi utan skólatíma.
Lýsing: Sif Tulinus er einn fremsti tónlistarmaður landsins og kemur reglulega fram sem einleikari, auk þess að vera virkur þátttakandi í flutningi kammertónlistar. Hún gegnir nú stöðu 2. konsertmeista Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Sif er einnig reyndur kennari og hefur stýrt námskeiðum í fiðluleik, m.a. á Apple Hill tónlistarhátíðinni í Bandaríkjunum.
Í samspili við vestfirska náttúru og eina bestu tónleikaaðstöðu landsins fá nemendur tækifæri til að vinna að tónlist sinni undir handleiðslu Sifjar. Reiknað er með því að nemendur komi undirbúnir með þau verk sem þeir vilja vinna á námskeiðinu. Námskeiðið er haldið sem hluti af tónlistarhátíðinni Við Djúpið og fá nemendur því að upplifa hvetjandi umhverfi, þar sem boðið er upp á röð tónleika og aðra viðburði.
Kennsluaðferð: Masterklass, einkakennsla í hóptímum
Masterklassnámskeið í píanóleik.
Kennari: Andrew Quartermain. Hluti af tónlistarhátíðinni Við Djúpið
Einingar:
Umsjónardeild: Tónlistardeild
Skipulag: Kennt á Ísafirði, 22. - 27. júní 2010
Staðsetning: Tónlistarskóli Ísafjarðar
Æfingaraðstaða: Aðstaða til æfinga í einkastofum Tónlistarskóla Ísafjarðar.
Hljóðfæri: Tónlistarskóli Ísafjarðar er búinn Steinway konsertflygli sem og píanóum í hverri stofu.
Námsmat: Ástundun
Markmið: Markmið námskeiðsins er að gefa nemendum kost á að njóta tilsögn og handleiðslu eins færasta listamanns á sínu sviði í nýju og hvetjandi umhverfi utan skólatíma.
Lýsing: Andrew Quartermain hefur komið fram sem einleikari víða um heim og verið virkur flytjandi kammertónlistar, en býr einnig yfir mikilli reynslu sem kennari. Hann kennir nú m.a. reglulega við Guildhall skólann og stýrir Pro Corda, alþjóðlegum tónlistarskóla sem leggur áherslu á að þjálfa nemendur á öllum aldri í flutningi kammertónlistar. Hann hefur einnig staðið fyrir námskeiðum í spunapíanóleik við helstu tónlistarskóla Bretlands. Á námskeiðinu njóta nemendur handleiðslu Quartermain í einni bestu tónleikaaðstöðu landsins. Reiknað er með því að nemendur komi undirbúnir með þau verk sem þeir vilja vinna á námskeiðinu. Námskeiðið er haldið sem hluti af tónlistarhátíðinni Við Djúpið og fá nemendur því tækifæri til að vinna að list sinni í hvetjandi umhverfi, upplifa tónleika og aðra viðburði og ekki síst njóta vestfirskrar náttúru.
Kennsluaðferð: Masterklass, einkakennsla í hóptímum
Masterklassnámskeið í söng
Kennari: Janet Williams. Hluti af tónlistarhátíðinni Við Djúpið
Einingar:
Umsjónardeild: Tónlistardeild
Skipulag: Kennt á Ísafirði, 22. - 27. júní 2010
Staðsetning: Tónlistarskóli Ísafjarðar
Æfingaraðstaða; Aðstaða til æfinga er bæði í menningarmiðstöðinni Edinborg og Tónlistarskóla Ísafjarðar.
Námsmat: Ástundun
Markmið: Markmið námskeiðsins er að gefa nemendum kost á að njóta tilsögn og handleiðslu eins færasta listamanns á sínu sviði í nýju og hvetjandi umhverfi utan skólatíma.
Lýsing: Janet Willims hefur hlotið verðskuldaða athygli fyrir söng sinn víða um heim og hefur sungið burðarhlutverk í óperuhúsum á borð við Metropolitan óperuna og Ríkisóperuna í Berlín. Hún hefur líka mikla reynslu af kennslu og stendur sjálf fyrir námskeiðum fyrir söngvara. Á námskeiðinu í sumar verður farið í raddþjálfun og túlkun auk atriða varðandi sviðsframkomu. Reiknað er með því að nemendur komi undirbúnir með þau verk sem þeir vilja vinna á námskeiðinu. Námskeiðið er haldið sem hluti af tónlistarhátíðinni Við Djúpið og fá nemendur því að vinna að list sinni í hvetjandi umhverfi, upplifa tónleika og aðra viðburði og ekki síst njóta vestfirskrar náttúru.
Kennsluaðferð: Masterklass, einkakennsla í hóp og hópkennsla.