Valmynd

Um Háskólasetur

Námsnet

Vefpóstur

Ráđstefnur og fyrirlestrar

Háskólasetur Vestfjarða stendur fyrir ráðstefnum og fyrirlestrum af öllum stærðum og gerðum. Allt frá stórum alþjóðlegum ráðstefnum á sviði menningar, náttúru og vísinda til smærri óformlegra erinda um allt á milli himins og jarðar.

Meðal fastra liða má nefna Vísindaport Háskólaseturs sem er óformlegur umræðutími í hádeginu á föstudögum. Vísindaportið er vettvangur til að kynna í stuttu máli rannsóknir eða annað efni sem unnið er að eða er lokið.

Einnig stendur Háskólasetrið að fyrirlestraröð í samstarfi við Vestfjarðaakademíuna sem haldnir eru tvisvar á önn.

Háskólasamfélagiđ

„Auk samnemenda minna í CMM meistaranáminu mun ég sakna andrúmsloftsins í Háskólasetrinu. Stundir sem heilluðu tengjast oftast vettvangsferðum, t.d. að læra hvernig fiskeldi virkar í raun og veru með því að hoppa milli kvíanna og hjálpa til við að færa fiskinn á milli þeirra."

Astrid Dispert, Ţýskalandi CMM nemi 2008-2009
Vefumsjón