Uppbygging námsins
Haf- og strandsvæðastjórnun (Coastal and Marine Management) er þverfaglegt meistaranám í umhverfis- og auðlindastjórnun sem byggir einkum á vistfræði, hagfræði og félagsvísindum. Námið er alþjóðlegt og fer öll kennsla fram á ensku, það er uppbyggt sem staðbundið lotunám og fer kennslan fram á Ísafirði í Háskólasetri Vestfjarða.
Námsgráða / einingafjöldi
Nemendur útskrifast með MRM gráðu (Master of Natural Resource Management) með haf- og strandsvæðastjórnun sem sérsvið. Gráðan er samtals 120 einingar (ECTS) og taka nemendur 90 ECTS í formi námskeiða og 30 ECTS í formi lokaverkefnis (mögulegt er að hafa lokaverkefnið stærra). Námskeiðin eru kennd á þremur önnum, 30 ECTS einingar á hverri önn, en hvert námskeið er 6 ECTS einingar og taka nemendur fimm slík námskeið á önn. Fyrstu sjö námskeiðin í náminu mynda kjarna sem allir nemendur þurfa að ljúka. Síðari hluti námsins, síðustu átta námskeiðin, eru svo valnámskeið.
Inntökuskilyrði / inntökumáti
Skilyrði fyrir inntöku í námið er að nemendur hafi lokið grunnháskólagráðu og gildir þá einu hvort um er að ræða BA, BS eða B.ed. Nemendur fylla út umsóknareyðublað, sem bæði má nálgast rafrænt og á pdf. formi, en auk þess skrifar hver og einn nemandi persónulegt bréf þar sem viðkomandi segir frá sjálfum sér, ástæðum þess að hann óskar eftir að sækja þetta nám og hvaða væntingar hann gerir til námsins.
Námsleiðir
Hver nemandi þarf að ljúka sjö kjarnanámskeiðum (42 ECTS). Þegar kjarnanámskeiðum er lokið verður nemendum boðið að velja um eitt af tveimur námskeiðum í hverri þriggja vikna lotu. Þ.e.a.s. í hverri þriggja vikna lotu verða tvö valnámskeið í boði og ráða nemendur hvort námskeiðið þeir velja. Hver nemandi þarf að ljúka 48 ECTS í formi valnámskeiða. Þetta fyrirkomulag sést betur á töflu sem sýnir yfirlit yfir kennsluáætlun. Mögulegt er að taka valnámskeið við aðra háskóla, en meta þarf í hvert sinn hvort viðkomandi námskeið passar inn á Haf- og strandsvæðastjórnun.
Námslengd
Gert er ráð fyrir að námið taki eitt ár á eðlilegum hraða fyrir utan vinnslu lokaverkefnis. Námið er sett þannig upp að nemendur hefja nám í september og ljúka öllum námskeiðum á þremur önnum (haustönn-vorönn-sumarönn). Að þeim tíma liðnum ætti að standa eftir vinnsla 30 ECTS lokaverkefnis sem gert er ráð fyrir að sé unnið á einni önn. Ekki er þó nein skylda að taka námið á þessum hraða því námsmenn geta að sjálfsögðu ráðið því hversu margar ECTS þeir taka á hverri önn og þannig geta þeir dreift náminu á lengri tíma. Það getur hentað ef námið er t.d. tekið samhliða vinnu. Einnig er mögulegt fyrir fólk á vinnumarkaðnum að taka stök námskeið í endurmenntunarskyni.
Misseraskipting og kennsluhættir
Náminu er skipt upp í fjórar annir og hverri önn skipt í fimm þriggja vikna kennslulotur þar sem nemendur ljúka einu 6 ECTS námskeið á þremur vikum, samtals 30 ECTS á hverri önn. Eitt námskeið verður kennt í einu, þ.e. nemendur ljúka einu námskeiði á þremur vikum (samkvæmt staðli er gert ráð fyrir að 2 ECTS samsvari 1 viku vinnu).
Einstaklingsmiðað nám
Smæð Háskólaseturs Vestfjarða gerir það að verkum að lögð verður sérstök áhersla á að gera námið eins einstaklingsmiðað og hægt er. Í því felst að áhugasvið og forþekking nemenda fær notið sín auk þess sem sérstök áhersla verður lögð á að nemendur hafi góðan aðgang að kennurum og starfsfólki Háskólaseturs.
Einstaklingsmiðað nám felst einnig í því að meta til eininga kunnáttu eða færni á framhaldsháskólastigi sem nemandi hefur aflað sér áður eða sem hann ætlar að afla sér utan Háskólaseturs Vestfjarða, t.d. í samstarfsháskóla.
Rík áhersla er lögð á að nýir kennsluhættir séu nýttir til hins ýtrasta, t.d. með því að tengja námið við raunaðstæður með vettvangsferðum og -athugunum, heimsóknum í fyrirtæki, og hagnýtri verkefnavinnu.
Kjarnagreinar – valgreinar
Samtals eru kjarnagreinar 42 einingar, sem allir þurfa að taka.
Kjarnagreinar:
- Integrated Coastal and Marine Management Coastal and Marine Ecology – 6 ECTS
- Society and Natural Resources– 6 ECTS
- Applied Methodology – 6 ECTS
- Physical Processes of Coastal and Marine Environment – 6 ECTS
- Economics of Coastal and Marine Environments – 6 ECTS
- Coastal and Marine Politics and Policy – 6 ECTS
- Coastal and Marine Ecology – 6 ECTS
Hver nemandi þarf svo að taka 48 ECTS í formi valnámskeiða.
Lokaverkefni
Nemendur þurfa að vinna 30 ECTS lokaverkefni. Gert er ráð fyrir að nemendur vinni lokaverkefnið þegar þeir hafa lokið öllum námskeiðum og því er það valkvætt hvort nemendur séu staðsettir á Ísafirði á meðan á vinnslu lokaverkefnis stendur. Nemanda er frjálst að vinna lokaverkefni í samstarfi við samstarfsháskóla. Einnig er mögulegt að taka stærra lokaverkefn, en þó aldrei stærra en 60 ECTS einingar.