Menu

University centre

Log in

Webmail

Þriggja vikna námskeið í íslensku máli og menningu

Námskeið í íslensku haldið á Ísafirði dagana 2. - 20. ágúst 2010.

Frekari upplýsingar eru á ensku.



Námskeiðslýsing

Íslenskunámskeið þar sem menningu landsins er fléttað inn í tungumálanámið. Námið er ætlað erlendum borgurum sem áhuga hafa á að læra íslensku.

Nemendur ljúka samtals 88 fjölbreyttum og áhugaverðum kennslustundum, bæði í hefðbundnum kennslustofum og í spennandi dagsferðum um nágrenni Ísafjarðar.

Grundvallaratriði í málfræði og orðaforða verða kennd í gegnum fyrirlestra og æfingar. Lestrar- og skriftarkunnátta á stigi A2-B1 verður kennd í gegnum hópavinnu og lausnarleitarnám, til dæmis með því að bera kennsl á lykilorð og orðflokka, svo nemendur geti áttað sig á umfjöllunarefni texta. Nemendur taka þátt í samtalsæfingum í gegnum tungumálaleiki og lausnarleitarnám við raunverulegar aðstæður. Framburðaræfingar verða fjölbreytilegar og óvenjulegar.  Ferð verður farin á söguslóðir Gísla sögu þar sem meðal annars veður boðið upp á einleik Elfars Loga Hannessonar upp úr Gísla sögu.


Vikulega sjá nemendur íslenska kvikmynd sem kennari fylgir úr hlaði með stuttu inngangserindi á einfaldri íslensku þar sem lykilorðaforði er kynntur. Myndirnar verða á íslensku en að hluta til með enskum texta. Að sýningu lokinni gefst nemendum kostur á að ræða myndina við kennarann.

Afþreyingardagskrá

Þótt tungumála- og menningarnámið sé í aðalhlutverki verður einnig í boði fjölbreytt afþreyingardagskrá.

Á Ísafirði eru í boði margskonar afþreying, s.s. skipulagðaar ferðir af ýmsu tagi.  Þessar ferðir eru ekki innifaldar í námskeiðsgjaldinu.

Á Ísafirði finna nemendur fjölda áhugaverðra staða, þar eru kaffihús, veitingastaðir og skemmtistaðir. Þar er líka sundlaug, golfvöllur og margt fleira auk þess sem náttúran í kring býður upp á ýmsa möguleika.  Þátttaka í daglegu lífi í litlu bæjarfélagi á landsbyggðinni eins og Ísafirði auðveldar nemendum að fá tilfinningu fyrir íslensku samfélagi.

Hér er um að ræða áhugavert sumarnámskeið í fallegri náttúru Vestfjarða. Háskólasetur Vestfjarða hefur reynslu af því að halda íslenskunámskeið fyrir erlenda stúdenta og borgara og býður nemendur hjartanlega velkomna.

Our community

"It is a delight to be here, utterly unique. The best thing about it is that I have no idea how to describe it to anyone once I leave - it defies easy description! I will encourage all faculty and students I know to come here to study and conduct their research."
Marc L. Miller CMM Instructor, Professor, Marine Affairs University of Washington, Seattle, USA

Announcements

Marine biologist – postdoc position in Breiðafjord-area
Vör Marine Research Centre in Ólafsvík, Breiðafjörður, seeks a candidate to participate in building a research team on food web studies in Breiðafjörður, West Iceland. Applicants m......
More
Vefumsjón