Yfirlit frumgreinanáms
Lengd náms fer eftir undirbúningi nýnema. Fullt nám á frumgreinasviði er 21 eining á 1. önn og 24 einingar á 2., 3. og 4. önn. Námið er lánshæft hjá LÍN, samkvæmt úthlutunarreglum LÍN, kafli 1.2.2. um sérnám á Íslandi (nema 1.önn námsins sem telst ekki lánshæft nám hjá LÍN) og kennsla fer fram í dagskóla og í fjarkennslu (1. og 2. önn) í Háskólasetri Vestfjarða.
Hver námsáfangi er þrjár einingar (framhaldsskólaeiningar, sem teljast 3,75 ECTS einingar) og hver önn er 15 vikur auk prófa. Námsgreinar á frumgreinasviði eru: stærðfræði, eðlisfræði, efnafræði, íslenska, danska, enska, þýska, hugmyndasaga og tölvutækni. Nemendur sem ljúka fullu námi á frumgreinasviði brautskrást með frumgreinapróf, sem veitir réttindi til áframhaldandi náms á háskólastigi. Námið er góður undirbúningur að alhliða háskólanámi, sérstaklega er þó miðað að því að undirbúa nemendur fyrir háskólanám í raungreinum.
Frumgreinanám er hagnýtt og krefjandi og hentar vel metnaðarfullum einstaklingum. Kennarar Háskólaseturs Vestfjarða í frumgreinum leggja metnað sinn í að veita nemendum fyrsta flokks menntun og öll þjónusta við nemendur er persónuleg og einstaklingsmiðuð.
Kennsla hófst í fyrsta skipti í janúar 2008 á 1. önn frumgreinanáms við Háskólasetur Vestfjarða og lýkur kennslu í staðarnámi í frumgreinum við Háskólasetrið formlega á vorönn 2010.
Skipulag frumgreinanáms:

| 1. önn |
2. önn |
3. önn |
4. önn |
|
| Íslenska |
ÍSL1003 |
ÍSL2003 |
ÍSL3003 |
ÍSL4003 |
| Danska |
DAN1003 |
DAN2003 |
DAN3003 |
|
| Enska |
ENS1003 |
ENS2003 |
ENS3003 |
ENS4003 |
| Þýska |
ÞÝS1003 |
ÞÝS2003 |
||
| Stærðfræði (algebra) |
STÆ1003 |
STÆ2003 |
STÆ3003 |
STÆ4003 STÆ5003 |
| Stærðfræði (rúmfræði) |
STÆ1103 |
STÆ2103 |
STÆ3103 |
STÆ4103 |
| Tölvufræði |
TÖL1003 |
|||
| Bókhald |
BÓK1003 |
|||
| Efnafræði |
EFN1003 |
EFN2003 |
||
| Eðlisfræði |
EÐL1003 |
EÐL2003 |
EÐL3003 |
|
| Tölvutækni |
TÖT1003 |
|||
| Hugmyndasaga |
HUG1003 |