Inntökuskilyrđi
Eftirtaldir geta sótt um nám í frumgreinum:
1. Þeir sem hafa lokið skilgreindu starfsnámi, þ.e. burtfararprófi úr iðn-, verkmennta-, fjölbrautaskóla, eða sambærilegu námi. Ath: Ekki er gerð krafa um sveinspróf.
2. Nemendur sem uppfylla ekki skilyrði númer 1 geta einnig sótt um nám í frumgreinum hafi þeir umtalsverða starfsreynslu. Fyrir þessa nemendur er lengd námsins og samsetning háð undirbúningi viðkomandi.
3. Nemendur sem þegar hafa lokið stúdentsprófi en hafa ekki nægjanlegan fjölda eininga í stærðfræði og eðlisfræði. Þessir nemendur geta bætt við sig þeim einingum sem upp á vantar í frumgreinanámi og er lengd námsins háð fyrra námi viðkomandi.