Sumarönnin ţín er hér!
Í tengslum við þverfaglegt meistaranám í haf- og strandsvæðastjórnun býður Háskólasetur Vestfjarða upp á 60 einingar í námskeiðum á sumarönn. Hvert 6 eininga námskeið er kennt í þriggja vikna lotu og alls eru í boði 10 námskeið. Meistaranámið er samstarfsverkefni Háskólaseturs Vestfjarða og Háskólans á Akureyri.
Námskeiðin eru opin námsmönnum úr öllum háskólum, sem þó þurfa að standast almenn inntökuskilyrði námsins og hljóta samþykki meistaranámsnefndar. Þótt námskeiðin séu á meistarastigi geta lengra komnir nemar í grunnnámi einnig sótt um (sjá nánar undir forkröfur). Námskeiðin eru einkum gagnleg fyrir námsmenn á sviði náttúru- og félagsvísinda.
Samkvæmt samningi milli Háskólans á Akureyri og Háskóla Íslands geta námsmenn auðveldlega sótt námskeið hvors skóla um sig gegn vægu aukainnritunargjald (sjá nánar undir forkröfur).
Námskeiðin eru jafnframt opin fyrir þátttakendum úr atvinnulífinu, sem þó þurfa einnig að standast almenn inntökuskilyrði námsins og hljóta samþykki meistaranámsnefndar (sjá nánar undir forkröfur). Námskeiðin eru einkum gagnleg fyrir fagaðila á sviði skipulagsmála, auðlindanýtingar, rannsókna, umhverfismats eða öðrum tengdum vettvangi.
Gert er ráð fyrir litlum nemendahópum sem tryggir greiðan aðgang að kennurum. Mikil áhersla er lögð á að kennarar séu bæði vel metnir vísindamenn á sínu sviði sem og góðir kennarar. Kennsluaðferðir eru fjölbreyttar og áhersla lögð á fyrirlestra í bland við verkefna- og rannsóknavinnu og munu nemendur í flestum tilfellum skila greiningu og niðurstöðum í formi skýrslna, ritgerða og fyrirlestra. Áhersla er lögð á að verkefnavinna og athuganir byggist á raunaðstæðum og séu í tengslum við atvinnulíf og stofnanir á viðkomandi sviðum.
Nánari upplýsingar um tímasetningar námskeiða sjá í kennsluáætlun námsins. Kennslan fer fram á ensku.
Haustönn
Vorönn
- Coastal and marine politics and policy
- Coastal and marine ecology
- Planning of coastal and marine regions
- Aquaculture [fellt niđur 2010]
- Introduction to marine technology
- Fisheries management and ecological modeling
- Evaluating variation in population and communities [fellt niđur 2010]
- Environmental impact assessment and sustainability management systems
Sumarönn
- Chemistry and contamination in the coastal zone
- Climate changes and policy
- On the Law of the Sea and the Environment
- Marine transportation
- Conflict resolution in resource management
- Tourism policy and planning in coastal areas
- Human ecology
- Geographical information systems
- Coastal and marine conservation
- Energy and materials management